Image from CCP Offices Image from CCP Offices Image from CCP Offices
 
CCP Events

Python-ráðstefna

CCP, dohop og Python Software Foundation bjóða til
Python-ráðstefnu
í Salnum, Kópavogi, 15. janúar

Forritunarmálið Python má nýta við margs konar hugbúnaðarþróun. Það veitir mikinn stuðning við önnur forritunarmál, því fylgir umfangsmikið staðlasafn og hægt er að læra að forrita í Python á nokkrum dögum. Margir forritarar segja að notkun Python hafa leitt til talsverðar framleiðniaukningar og telja að það efli þróun hágæða kóða sem auðveldari sé í notkun og meðhöndlun.
(sjá nánar á www.python.org)

Komdu og kynntu þér það nýjasta í einu öflugasta forritunarmáli sem notað er um þessar mundir. Meðal fyrirlesara er Steve Holden, einn færasti sérfræðingur heims í notkun, kennslu og þróun Python.

Steve Holden hefur yfir þrjátíu ára reynslu í upplýsingatækni en hann kynntist Python forritunartungumálinu tiltölulega fljótt eftir að það varð til og hefur stutt þróun þess ötullega síðan. Hann er höfundur bókarinnar Python Web Programming og skipulagði og stýrði fyrstu þremur PyCon ráðstefnunum sem eru alþjóðlegar ráðstefnur notenda og áhugamanna um Python. Steve Holder er jafnframt stjórnarmaður Python Software Foundation, sem eru samtök sem vernda höfundarrétt að baki Python forritunarmálinu, standa að PyCon ráðstefnunum og veita þróunarstyrki innan Python samfélagsins. Steve rekur jafnframt Holden Web, ráðgjafarfyrirtæki með viðskiptavini í Bandaríkjunum og Evrópu.

Nánari upplýsingar: www.holdenweb.com; holdenweb.blogspot.com

Hlustaðu einnig á Hilmar Veigar Pétursson, Kristján Val Jónsson og Halldór Fannar Guðjónsson frá CCP sem munu m.a. kynna hvernig hinn vinsæli fjölþátttökutölvuleikur EVE Online byggir á Python forritunarmálinu. Jafnframt mun Atli Þorbjörnsson hjá dohop segja frá mikilvægi fyrir Python við þróun tækninnar á bak við dohop.com.

 

Skráning

Aðgangur er ókeypis, allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Við biðjum áhugasama þó um að skrá sig fyrir hádegi 12. janúar.

Húsrúm leyfir ekki fleiri
Því miður er ekki húsrúm fyrir fleiri áhugamenn um Python.

CCP, dohop og Python Foundation þakka frábærar móttökur og ljóst er að þar sem að áhuginn er svo mikill munum við skoða að endurtaka leikinn síðar.

 

Dagskrá Python-námsstefnunnar

Salnum, Kópavogi 15. janúar

13:00-13:15: Opnun
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP.
13:15-14:00: Technical presentation (a sort of introduction to Python)
Steve Holden, stjórnarmaður Python Software Foundation.
14:00-14:30: Stackless Python - fyrirlestur frá ráðstefnunni Pycon 2006
Kristján Valur Jónsson, verkfræðingur hjá CCP.
14:30-15:00: Mikilvægi Python fyrir Dohop
Atli Þorbjörnsson hjá Dohop
15:00-15:15: Kaffihlé
15.15-15.40: Pallborðsumræður - spurningar frá áhorfendum.
15:40-16:00: Stofnun íslensks Python-hóps
Halldór Fannar Guðjónsson, tæknistjóri CCP.
16:00-17:00: Léttar veitingar og samræður.